föstudagur, janúar 6

Nýr þjálfari Hamars


Kristmar Geir Björnsson hefur verið ráðinn spilandi þjálfari meistaraflokks knattspyrnudeildar Hamars.

Kristmar hefur leikið í fjölda ára fyrir Tindastól í 1., 2. og 3. deild og skorað 53 mörk í 139 leikjum.

Hamarsmenn hyggjast styrkja leikmannahóp sinn enn frekar fyrir komandi tímabil og eru nú þegar í viðræðum við leikmenn sem munu án efa hjálpa til í baráttunni næsta sumar.

Stefna Hamarsmenn á mun glæsilegri árangur í sumar en áður hefur sést í Hveragerði.


Meðfylgjandi mynd er tekin við undirritun samningsins. Við borðið frá vinstri; Hjörtur Sveinsson formaður meistaraflokks knattspyrnudeildar Hamars og Kristmar Geir Björnsson þjálfari. Standandi frá vinstri: Leikmenn Hamars, Rafn Haraldur Rafnsson og Sigurður Gísli Guðjónsson.