föstudagur, mars 30

Enginn leikur!!

McDonalds skilti á hlið
í gettóinu
ATH! ATH! Leiknum gegn KB sem vera átti á morgun hefur því miður verið frestað. Ástæðan er sú að sturturnar í Breiðholtinu eru bilaðar og því engin ástæða til þess að vera að djöflast í 90 mínútur.

Þjappan er þó en á áætlun og fundist hafa sturtur sem virka mjög vel. Áhugasamir ætla nefninlega að skella sér í Laugardalinn í staðin og hittast í sundlauginni kl 17:30 og taka þar pottin og rennibrautina. Annars er mæting fyrir sturtufælna á Trocaderos á Suðurlandsbraut klukkan 18:45.

Allur æfingahópurinn er boðaður í þjöppuna, og einnig þeir sem hafa áhuga á almennum skemtilegheitum.