þriðjudagur, mars 13

Firma- og hópakeppni Hamars

Allir á pallana!
Laugardaginn 24. mars 2007 verður haldin firma- og hópakeppni í íþróttahúsinu í Hveragerði frá kl:11:00 til 17:00.

Leikið verður í karla og kvennaflokkum og verða glæsileg verðlaun veitt fyrir þrjú efstu liðin í hvorum flokki. Einnig verða veitt verðlaun fyrir frumlegustu/flottustu búninga liðs....

Leiktími hvers leiks er 1 x 8 mín og eru 4 leikmenn úr hverju liði inná í einu, hvert lið má hafa 1-3 varamenn. Hafi fyrirtæki ekki nægan mannskap til þátttöku, getur knattspyrnudeildin útvegað úrvals leikmenn án endurgjalds.

Þátttakendur eru hvattir til að taka vinnufélagana og fjölskylduna með á mótið til að hvetja sig til dáða og skapa góða stemningu á áhorfendapöllum.

Þátttökugjald á hvert lið er kr. 12.000.-

ATH – TAKMARKAÐUR FJÖLDI LIÐA

Veitingasala á staðnum meðan mótið stendur yfir,
samlokur, kaffi, gos, sælgæti o.fl.

Skráning og nánari upplýsingar eru hjá:

Rafn, S: 867-0747 (rafnr05@ru.is)
Bjössi, S: 869-6602 (bjorn@trs.is)