laugardagur, maí 6

Árborg á mánudaginn

Passið ykkur á þessum!
(Mynd stolið af www. arborgfc.net)
Hamar og Árborg munu mætast á Stokkseyri í æfingarleik á mánudaginn næstkomandi í annað skipti eftir að fyrrverandi leikmaður og þjálfari Hamars, hin viðkunnanlegi, en jafnframt einbeitti, Einsi tók við þjálfun Árborgar. Fyrri leikurinn fór 3-3 en leikir þessara liða eru jafnan fjörugir og aldrei tomma gefin eftir, eins og vera ber í nágrannaslögum, og búast má við að lítil breyting verði á því á mánudaginn. Liðin eru ekki í sama riðli í sumar þannig að tetta er líklega eini leikur erkifjendanna þetta árið, nema að sjálfsögðu að bæði lið komist í úrslitakepnina. þetta er fyrsti leikur Hamars í ár á grasi og tilvalið tækifæri fyrir leikmenn til að fá smá graslykt á nýju takkaskóna sína og fyrir þá sem eiga eftir að sanna eitthvað fyrir þjálfaranum að gera það.

Leikurinn fer fram mánudaginn 8. maí kl: 20:00 á Stokkseyrarvelli. Mæting í íþróttahúsið í Hveragerði klukkan 18:30. Allir leikmenn Hamars boðaðir.

Baráttukveðjur frá Grís
Björn Ásgeir